Aftur í námskeið

Hvaða kröfur gera reglur stjórnsýsluréttar til stafrænnar stjórnsýslu?

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Námskeiðið fjallar um hvernig reglur stjórnsýsluréttar og tengd lög hafa áhrif á það hvernig stjórnvöld geta þróað og notað stafrænar lausnir. Tekin eru skýr dæmi um hvernig tryggja megi réttindi borgaranna jafnframt því að nýta tækni í stafrænum samskiptum. Þú færð innsýn í raunverulegar áskoranir sem koma upp við innleiðingu tækni t.d. varðandi skráningu upplýsinga, réttindi aðila í máli og ábyrgð þegar ákvarðanir eru teknar með tölvutækni eða algrímum. 

Þá verður fjallað um hvaða afleiðingar það kann að hafa ef aðferðir sem stjórnvöld nota á sviði upplýsingatækni eru ekki í samræmi við lög og reglur. Námskeiðið hjálpar þér að sjá hvernig hægt er að tryggja lögmæti og traust í stafrænu ferli.

Efnistök

  • Helstu áskoranir við innleiðingu stafrænnar stjórnsýslu
  • Réttindi borgaranna og gagnsæi í stafrænum samskiptum
  • Álitamál um skráningu upplýsinga og meðferð þeirra
  • Afleiðingar ólögmætrar tækni­notkunar hjá stjórnvöldum
Hæfniviðmið
Að þátttakendur öðlist grunnfærni í að beita reglum um starfslok á grundvelli þeirra ólíku reglna sem eiga við, hvort heldur vegna hagræðingar í rekstri eða atriðum sem varða starfsmanninn sjálfan.
Fyrirkomulag

Námskeiðið er í beinu streymi og einnig verður upptaka af því aðgengileg eftir að því lýkur.

Gott að vita

Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Stofnun stjórnsýslufræða HÍ. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála HÍ.

Umsjón
Fræðslusetrið Starfsmennt
Tengiliðir námskeiðs
  • Sólborg Alda Pétursdóttir
Námsform
Streymi
Tími
  • 25. mars 2026 klukkan 09:00-12:00

Lengd
3 klst
Mat
Mæting
Verð
Markhópur
Námskeiðið hentar vel stjórnendum, sérfræðingum og starfsfólki sem koma að skipulagningu, þróun eða innleiðingu stafrænnar stjórnsýslu og lausna hjá opinberum aðilum

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
25.03.2026Hvaða kröfur gera reglur stjórnsýsluréttar til stafrænnar stjórnsýslu?09:00Kjartan Bjarni Björgvinsson