20 góð ráð í þjónustusímsvörun - stafrænt námskeið
Fjallað er um hvernig á að veita afbragðsþjónustu í gegnum síma. Kennd eru ýmis gagnleg ráð til að hafa samtöl faglegri og um leið hnitmiðaðri. Farið er yfir tækni sem má nota í samskiptum við erfiða einstaklinga í síma.
Þátttakendur fá rafbókina 20 góð ráð í þjónustusímsvörun og gátlista yfir lykilþætti í þjónustusímsvörun. Nánari upplýsingar um bókina má sjá á www.gerumbetur.is.
Hæfniviðmið
Að geta stýrt samtölum og stytt þau.
Að þekkja algeng mistök í þjónustusímsvörun.
Að læra ýmis ráð í samskiptum við erfiða einstaklinga.
Að efla öryggi í samskiptum og fagmennsku.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er byggt upp með leiknum myndböndum, krossaspurningum og verkefnum.
Námskeiðið er opið í fjórar vikur og fjórum vikum eftir námskeiðslok fá þátttakendur sendan tölvupóst með áminningu um mikilvæga þætti í þjónustusímsvörun.
Helstu upplýsingar
- Tími12. mars 2025. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
- Lengd10 klst.
- UmsjónMargrét Reynisdóttir, M.Sc. í stjórnun og stefnumótun og M.Sc. í alþjóða markaðsfræði.
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum.
- TegundVefnám
- Verð24.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámskeiðið er opið öllum.
- MatSkila verkefnum 4 vikum eftir að námskeið hefst.
- Ummæli
- Mér fannst námskeiðið mjög gagnleg og skemmtileg. Eins var gott að vinna þau rafrænt og fá að velja þann tíma sem hentar. - – Kolbrún Sigmundsdóttir 
- Þetta er námskeið sem ég hvet aðra til að taka. - – Sigurlaug Lára Ingimundardóttir, ráðgjafi hjá Íbúðalánasjóði 
- Mjög gott námskeið og ég sé líka að ég hef eitthvað gert rétt í gegnum árin en alltaf má bæta sig. - – Brynhildur Baldursdóttir 
- Tengiliður námskeiðsBjörg Valsdóttir
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari | 
|---|---|---|---|---|
| 12.03.2025 | 20 góð ráð í þjónustusímsvörun | 00:00 | 10:00 | Margrét Reynisdóttir |