Aftur í námskeið

Það er nóg pláss í klúðurklúbbnum – gróskuhugarfar í verki

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Á þessu lifandi vefnámskeiði er fjallað um hvernig mistök, óvissa og ófullkomleiki eru eðlilegur og mikilvægur hluti af námi, þróun og árangri, bæði í starfi og einkalífi. Lögð er áhersla á hvernig viðhorf okkar til áskorana, mistaka og eigin getu móta hegðun, sjálfstraust, samskipti og frammistöðu.

Þátttakendur fá innsýn í hvernig þróa má gróskuhugarfar þar sem áhersla er lögð á lærdóm, seiglu og stöðuga þróun fremur en fullkomnun eða ótta við að gera mistök. Unnið er með raunhæf dæmi, ígrundun og einföld hagnýt verkefni sem styðja við að yfirfæra hugmyndirnar yfir í daglegt líf og starf.

Helstu viðfangsefni:

  • Klúður og mistök sem lærdómsferli og hvers vegna þau skipta máli
  • Fastmótað hugarfar vs. gróskuhugarfar: áhrif á hegðun, samskipti og árangur
  • Ótti við mistök, fullkomnunarárátta og sjálfsgagnrýni
  • Að skapa öruggt rými til að prófa, læra og vaxa
  • Hagnýt verkfæri til að efla gróskuhugarfar í daglegu lífi og starfi
Hæfniviðmið

Að auka skilning á mikilvægi gróskuhugarfars
Að geta nýtt hagnýt verkfæri til að efla gróskuhugarfar í daglegu lífi og starfi
Að geta endurmetið eigin viðhorf til áskorana, mistaka og eigin getu
Að efla seiglu, sveigjanleika og hugrekki í krefjandi aðstæðum
Að kunna að takast á við ótta við mistök, fullkomnunaráráttu og sjálfsgagnrýni með uppbyggilegum hætti
Að efla lærdóm og vellíðan ásamt persónulegri og faglegri þróun

Fyrirkomulag
Fyrirlestur og umræður
Umsjón
Ingrid Kuhlman
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform
Streymi
Tími
  • 11. mars 2026 klukkan 10:00-12:00

Lengd
2 klst
Mat
Mæting og þátttaka
Verð
14.000 kr

Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.

Markhópur
Öll sem vilja efla sjálfsþekkingu, hugrekki og sveigjanleika í krefjandi aðstæðum, styrkja lærdómsmenningu og skapa rými fyrir vöxt, þróun og vellíðan

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
11.03.2026Það er nóg pláss í klúðurklúbbnum – gróskuhugarfar í verki10:00Ingrid Kuhlman