Aftur í námskeið

SSH | Ofbeldi í þjónustu við fatlað fólk

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Á þessu námskeiði verður fjallað um þróun mannréttindaverndar fatlaðs fólks með áherslu á jafnrétti, ójöfn valdahlutföll, forréttindi og jaðarstöðu.
Lögð verður áhersla á að reyna að skilja ólíkar og flóknar birtingarmyndir ofbeldis gagnvart fötluðu fólki. Þá verður fjallað um ofbeldismenningu og ábyrgð starfsfólks á að vinna gegn slíkri menningu í þjónustu við fatlað fólk.

Efnistök

Að geta gert grein fyrir ólíkum birtingarmyndum ofbeldis í þjónustu við fatlað fólk
Að geta gert grein fyrir valdastöðu sinni og ábyrgð þegar kemur að því að vinna að jafnrétti og uppræta vinnulag og verkferla sem ýta undir ofbeldismenningu.

Hæfniviðmið

Að geta gert grein fyrir ólíkum birtingarmyndum ofbeldis í þjónustu við fatlað fólk
Að geta gert grein fyrir valdastöðu sinni og ábyrgð þegar kemur að því að vinna að jafnrétti og uppræta vinnulag og verkferla sem ýta undir ofbeldismenningu.

Fyrirkomulag
Fyrirlestur, myndbönd, umræður og verkefni.
Gott að vita
Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það af sínum yfirmönnum (fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ,  Seltjarnarnesi og Andrastöðum á Kjalarnesi).
Samstarfsaðili
Kópavogsbær, Mosfellsbær, Garðabær, Hafnarfjarðarbær, Seltjarnarnesbær og Andrastöðum á Kjalarnesi.
Umsjón
Helga Baldvinsd. Bjargardóttir
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform
Staðnám
Tími
  • 28. nóvember 2023 klukkan 09:00-12:00

Lengd
3 klst
Mat
Mæting og þátttaka
Staðsetning
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Nám ætlað starfsmönnum sem starfa að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnes og Andrastöðum á Kjalarnesi

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
28.11.2023Ofbeldi í þjónustu við fatlað fólk09:00Helga Baldvins Bjargardóttir