Aftur í námskeið

Samningatækni

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Á námskeiðinu eru þátttakendur markvisst þjálfaðir til að ná aukinni færni í samningagerð,hvort sem um er að ræða formlega eða óformlega samninga. Verður m.a. farið yfir lykilþætti árangursríkrar samningatækni og kynntar leiðir til að ná fram meiri árangri í samningaviðræðum og stuðla að lausnamiðaðri nálgun við samningsaðila.

Hluti námskeiðsins felst í undirbúningi fyrir samningaviðræður. Þátttakendur læra ýmsar gagnlegar aðferðir við uppbyggingu á árangursríku samningaferli og mismunandi tækni við að mæta ólíkum samningsmönnum. Loks verður vikið að siðfræði í samnningaviðræðum.

Á námskeiðinu verður m.a. fjallað um:

  • Markvissan undirbúning fyrir samningaviðræður.
  • Gagnlegar aðferðir við uppbyggingu á árangursríku samningaferli.
  • Tækni til að mæta ólíkum samningamönnum.
  • Hvernig hægt er að ná árangri í samningaviðræðum.


Efnistök

Að auka færni í samningaviðræðum til að ná meiri árangri og byggja upp aukið sjálfstraust til að takast á við krefjandi aðstæður.
Að geta beitt skapandi hugsun við úrlausn mála.

Hæfniviðmið

Að auka færni í samningaviðræðum til að ná meiri árangri og byggja upp aukið sjálfstraust til að takast á við krefjandi aðstæður.
Að geta beitt skapandi hugsun við úrlausn mála.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er vefnám á stafrænu formi sem gerir þátttakendum kleyft að fara yfir efnið á þeim stað og tíma sem hentar.

Eftir skráningu hjá Starfsmennt þarf að bíða eftir næsta virka degi, þá kemur póstur frá Opna Háskólanum í HR sem veitir aðgang að námssvæði námskeiðisins (kennslukerfi Opna háskólans).

Ef þátttakandi er þegar skráður með aðgang hjá Opna Háskólanum í HR mun viðkomandi fá póst frá Starfsmennt til að skrá sig á námskeiðið beint hjá þeim en með greiðsluupplýsingum Starfsmenntar.

Gott að vita

Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga rétt hjá samstarfssjóðum verða afskráð hjá Starfsmennt en geta skráð sig hjá  Opna Háskólanum í HR.

Samstarfsaðili
Opni Háskólinn í Háskólanum í Reykjavík
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
1,4166666666666667 klst
Mat
Áhorf
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Fyrir öll sem vilja auka færni sína í samningaviðræðum og læra að beita skapandi hugsun við að hámarka virði einstakra samningaviðræðna.