Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Viltu skilja hvað gervigreind er og hvernig þú getur nýtt hana á einfaldan og hagnýtan hátt? Þá er þetta námskeið fyrir þig.
Á þessu námskeiði færð þú kynningu á fjórum vinsælum gervigreindar (AI) verkfærum: ChatGPT, Perplexity, Gemini og NotebookLM.
Við sýnum þér hvernig þessi tól geta hjálpað þér að leysa hin ýmsu verkefni, spara tíma og öðlast innsýn – hvort sem þú ert að vinna, læra eða bara svala forvitninni um tæknina.
Það sem verður kynnt:
• hvað gervigreind er og hvernig hún virkar
• hvernig á að nota ChatGPT til að fá svör, skrifa texta og fá hugmyndir
• hvernig Perplexity leitar og skýrir svör með heimildum
• hvernig Gemini getur hjálpað þér með Google-verkfæri
• hvernig NotebookLM vinnur með þínum eigin gögnum
Grunnhugtök
Hagnýting
Gagnrýni
Geta og takmörk
Að þekkja til gervigreindar og tengdra hugtaka
Að geta valið og nýtt mismunandi gervigreindartól í lífi og starfi
Að átta sig á mikilvægi þess að viðhalda gagnrýnni hugsun þegar unnið er með gervigreindartól
Að þekkja helstu styrkleika og takmarkanir núverandi gervigreindartækni
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 04.03.2026 | Gervigreind fyrir byrjendur – kynning á nokkrum hagnýtum verkfærum | 09:00 | Hermann Jónsson |