Aftur í námskeið

SharePoint

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

SharePoint er öflugt samvinnuverkfæri frá Microsoft sem nota má til að halda utan um og vinna með efni og upplýsingar eins og skjöl, gagnalista, vefsíður og verkefni og jafnvel myndir eða  myndbönd.  
Námskeiðinu er ætlað að gera þátttakendur að öruggum notendum í SharePoint umhverfinu. Þú kynnist ítarlega helstu virkni kerfisins sem almennir notendur þurfa að þekkja.
Efnistök eru brotin niður í smærri einingar með textapistlum, kennslumyndböndum og léttum æfingum. Nemendur hafa góðan stuðning frá kennara og efnistökum verður bætt við út frá fyrirspurnum nemenda. 

Efnistök:

  • Notendaviðmót.
  • SharePoint svæði, vefpartar og stillingar (News, links, events).
  • Samhæfing skjala.
  • Að búa til skjalasöfn og lista.
  • Tegundir lista.
  • Deiling á gögnum.
  • Skjalasýn.
  • Útgáfusaga.
  • Stillingar skjalasafna.
  • Office og SharePoint.
  • Að búa til síður (e.Pages), skjalasöfn og lista.
  • Leit í Sharepoint.
  • OneDrive, Office & SharePoint. 
Efnistök

Að kynnast og læra á virkni SharePoint til almennra nota

Hæfniviðmið

Að kynnast og læra á virkni SharePoint til almennra nota

Fyrirkomulag

Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.

Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is

Samstarfsaðili

Tölvuskólinn Nemandi

Umsjón

Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari

Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform

Á eigin hraða

Lengd

12 klst

Mat

Verkefnaskil

Verð

43.500 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur

Öll sem vilja kynnast samvinnu-verkfærinu SharePoint