Undirritun samstarfssamnings Starfsmenntar og mannauðssjóðs Heklu

05. nóvember 2025

Á dögunum skrifuðu Hrund Hlöðversdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðssjóðs Heklu og Guðfinna Harðardóttir, framkvæmdastjóri Fræðsluseturs Starfsmenntar undir samstarfssamning. Nýi samningurinn tekur við af samningi frá árinu 2008 sem var þá gerður við fyrri mannauðssjóði; Kjöl, Samflot og KSG.

Mannauðssjóðurinn Hekla hefur það hlutverk að veita styrki til fræðsluverkefna á vegum sveitarfélaga og stofnana þeirra með það að leiðarljósi að stuðla að framgangi starfsfólks og framþróun með markvissri starfsþróun. Samhliða sjóðnum rekur Hekla Mannauðssetur sem hefur það hlutverk að vinna að fræðslutækifærum og miðlun þeirra. Mannauðssetur leggur áherslu á samvinnu við tengda fræðsluaðila.

Ef þú ert í starfi hjá sveitarfélagi og átt rétt hjá Heklu þá hvetjum við þig til að kynna þér hvað er í boði hjá Starfsmennt til að efla þig í starfi!