Hvernig getum við tekist á við breytingar og stuðlað að því að þær verði farsælar?
Breytingar eru óhjákvæmilegur hluti af starfsumhverfinu og geta haft ólík áhrif á fólk. Á námskeiðinu er fjallað um eðli breytinga, hvernig við bregðumst við þeim og hvað getur auðveldað fólki að takast á við þær.
Þátttakendur fá aukinn skilning á því hvað þarf til að breytingar gangi vel og hvernig stjórnendur og starfsfólk geta unnið saman að því að skapa skýrleika, þátttöku og traust í breytingaferlinu. Áhersla er lögð á hagnýta þekkingu sem nýtist við ólíkar breytingar á vinnustað.
Að auka skilning á eðli breytinga.
Að auka skilning á áhrif breytinga á fólk og vinnustaði.
Að þekkja ráð til að auka árangur breytinga.
Námskeiðið er á stafrænu formi sem gerir þér kleift að fara yfir efnið á þeim tíma sem þér hentar.
Efni námskeiðsins er aðgengilegt í gegnum kennslukerfi Opna háskólans.
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum verða afskráð hjá Starfsmennt en geta skráð sig hjá Opna háskólanum í Reykjavík.
ATH. Sæti á námskeiðið er aðeins tryggt þegar staðfesting hefur borist frá Opna háskólanum
Áhorf
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða