Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 10:00
Viltu fá tæki og tól í hendurnar og aukið sjálfstraust til að taka samtalið í vinnunni og ræða málin? Hvernig ræðum við það sem betur má fara, hvort sem það er frammistaða, samskipti eða fagmennska?
Á námskeiðinu er farið yfir hvernig við getum aukið færni okkar í að eiga gagnleg samtöl.
Fáa langar til að taka óþægilega samtalið og margir veigra sér við því. En aðgerðaleysinu fylgir óneitanlega sú hætta að vandamálið vaxi. Því er mikilvægt að stjórnendur búi yfir þekkingu og reynslu í að taka samtalið til að geta brugðist við þegar við á.
Samtölin geta verið mismunandi. Þau geta til dæmis verið leiðbeinandi samtöl þar sem ræða þarf ófullnægjandi frammistöðu, samskipti sem þarf að bæta eða eitthvað annað sem tengist vinnustaðnum og þarf að ræða.
Farið verður yfir undirbúning, hvað skiptir mestu máli í sjálfu samtalinu og hvernig best er að fylgja því eftir.
Að skilja hvað gerir samtal árangursríkt og hvaða þættir stuðla að góðri samtalsfærni.
Að geta beitt markvissum aðferðum til að hefja og viðhalda uppbyggilegu samtali.
Að geta átt samtal um viðkvæm eða erfið málefni með auknu sjálfstrausti.
Að geta nýtt verkfæri og tól sem styrkja eigin tjáningu og hlustun í samtali.
Að geta rætt um ólíkar skoðanir af virðingu og með opnum huga.
Fyrirlestur, umræður og verklegar æfingar.
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða