Vilt þú nýta betur það verkfæri sem starfsmannasamtöl eru við stjórnun mannauðsmála?
Á tímum stöðugra breytinga, áskorana í umhverfinu og aukinnar fjarvinnu er mikil þörf á því að eiga betri og tíðari starfsmannasamtöl við starfsmenn.
Starfsmannasamtöl eru oft vannýtt verkfæri í stjórnun og tíðari starfsmannasamtöl eru að koma í stað árlegra samtala með mjög góðum árangri. Markmið tíðari starfsmannasamtala er að tryggja betri samskipti, bæta upplýsingaflæði og veita tíðari endurgjöf.
Á námskeiðinu verður farið yfir mismunandi form og tíðni starfsmannasamtala. Fjallað verður um helstu þætti sem stuðla að því að starfsmannasamtalið verði árangursríkt. Hver er helsti ávinningurinn fyrir vinnustaðinn, stjórnandann og starfsmanninn. Hvernig styðjum við starfsmenn í markmiðasetningu og tryggjum eftirfylgni.
Fjallað verður um hvað felst í góðri samtalstækni og virkri hlustun. Einnig verður fjallað um hvernig við getum nýtt okkur aðferðafræði markþjálfunar í starfsmannasamtölum og hvernig er hægt að bæta endurgjöf.
Að geta gert grein fyrir mikilvægi og tilgangi starfsmannasamtala .
Að geta tileinkað sér betri samtalstækni og hlustun.
Að geta leitt starfsmannasamtöl á faglegan máta.
Að geta veitt endurgjöf á viðeigandi máta.
Að geta beitt fjölbreyttum aðferðum við að breyta fyrirkomulagi sem hægt er að byrja strax að vinna með.
Fyrirlestur og umræða
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.
Mæting og þátttaka
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða