Aftur í námskeið

Árangursríkari starfsmannasamtöl

Lýsing

Vilt þú nýta betur það verkfæri sem starfsmannasamtöl eru við stjórnun mannauðsmála?

Á tímum stöðugra breytinga, áskorana í umhverfinu og aukinnar fjarvinnu er mikil þörf á því að eiga betri og tíðari starfsmannasamtöl.

Starfsmannasamtöl eru oft vannýtt verkfæri í stjórnun og tíðari starfsmannasamtöl eru að koma í stað árlegra samtala með góðum árangri. Markmið tíðari starfsmannasamtala er að tryggja betri samskipti, bæta upplýsingaflæði og veita tíðari endurgjöf.

Á námskeiðinu verður farið yfir mismunandi form og tíðni starfsmannasamtala. Fjallað verður um helstu þætti sem stuðla að því að starfsmannasamtalið verði árangursríkt. Þá verður farið yfir hver helsti ávinningurinn er fyrir vinnustaðinn, stjórnandann og starfsmanninn. Einnig verður fjallað um hvernig hægt er að styðja við starfsmenn í markmiðasetningu og tryggja eftirfylgni.

Fjallað verður um hvað felst í góðri samtalstækni og virkri hlustun. Einnig verður farið yfir hvernig við getum nýtt okkur aðferðafræði markþjálfunar í starfsmannasamtölum og hvernig er hægt að bæta endurgjöf.

Efnistök
  • Tilgangur og markmið með tíðari starfsmannasamtölum
  • Mismunandi útfærslur starfsmannasamtala
  • Undirbúningur og innleiðing
  • Samtalstækni og virk hlustun
  • Markmiðasetning og eftirfylgni
  • Endurgjöf og hrós
Hæfniviðmið

Að geta gert grein fyrir mikilvægi og tilgangi starfsmannasamtala.
Að geta tileinkað sér betri samtalstækni og hlustun.
Að geta leitt starfsmannasamtöl á faglegan máta.
Að geta veitt endurgjöf á viðeigandi máta.
 

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræða.

Gott að vita

Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.

Samstarfsaðili
Endurmenntun Háskóla Íslands
Umsjón
Inga Þórisdóttir stjórnendaþjálfi
Námsform
Staðnám
Tími
  • 17. nóvember 2026 klukkan 08:30-12:00

Lengd
3,5 klst
Mat

Mæting og þátttaka

Staðsetning
Endurmenntun HÍ Dunhagi 7, 107 Reykjavík
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Fyrir alla stjórnendur, mannauðsstjóra, verkefnastjóra og hópstjóra sem vilja ná betri árangri sem stjórnendur og vilja bæta samskipti, upplýsingagjöf og endurgjöf til starfsmanna sinna.