Góð samskipti eru grunnurinn að vellíðan á vinnustað og starfsánægju. Mikilvægt er að rödd allra heyrist og að starfsfólk upplifi jafnvægi í samskiptum sín á milli.
Á þessu námskeiði verður fjallað um faglega hegðun á vinnustað (e. professional behaviour) og hvernig hægt er að tileinka sér samskipti sem stuðla að jákvæðri vinnustaðamenningu.
Skoðaðar verða leiðir til að auka vellíðan á vinnustað, auka færni í faglegum samskiptum á vinnustað, auka sjálfstraust í samskiptum og auka skilning á eðli viðbragða og hegðunar annarra.
Að geta gert grein fyrir því hvað fagleg hegðun á vinnustað felur í sér.
Að geta gert grein fyrir eðli ólíkrar hegðunar á vinnustað.
Að geta notað ýmsar leiðir til að styrkja sig í samskiptum á vinnustað til að auka starfsánægju.
Að geta brugðist við erfiðum samskiptum með uppbyggilegum hætti.
Að þekkja hvernig hægt er að þjálfa áræðni (e. assertiveness) í samskiptum.
Um lifandi kennslu er að ræða þar sem þátttakendur taka virkan þátt í námskeiðinu. Æfingar, dæmi og umræður.
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.
Endurmenntun Háskóla Íslands
Hildur Halldórsdóttir og Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir, sérfræðingar og ráðgjafar í mannauðsmálum
Staðnám
Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
3 klst
Mæting og þátttaka
Endurmenntun HÍ Dunhagi 7, 107 Reykjavík
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Öll sem vilja auka færni og vellíðan í samskiptum á vinnustað