Upplifir þú stöðugt truflanir í vinnunni eða einkalífinu sem taka frá þér orku og einbeitingu?
Á þessu námskeiði færðu hagnýtar aðferðir til að ná stjórn á hugsunum, halda fókus og komast oftar í flæði, líka þegar umhverfið er krefjandi.
Námskeiðið byggir á aðferðum úr íþróttasálfræði sem heimsklassa íþróttafólk notar til að halda fókus undir álagi og ná sínum besta árangri á stærsta sviðinu. Aðferðirnar eru yfirfærðar á daglegt líf á lifandi og skemmtilegan hátt.
Á námskeiðinu eru hugtökin fókus og flæði útskýrð auk þess sem farið er í mismunandi tegundir truflana sem hafa áhrif á athygli og afköst. Þú lærir og prófar fjórar einfaldar aðferðir til að styrkja athygli, sjálfstjórn og nærveru í þeim verkefnum sem skipta þig máli.
Að öðlast getu til að greina hvaða truflanir hafa mest áhrif og að geta brugðist við þeim.
Að öðlast skýrari hugsun, stöðugri fókus og sterkari sjálfsstjórn við dagleg verkefni.
Að öðlast færni í að endurstilla hugann hratt.
Að öðlast meiri ró undir álagi.
Þú getur tekið námskeiðið á eigin hraða og færð aðgang að því hjá Endurmenntun HÍ. Aðgangur að netnámskeiðinu er opinn í þrjá mánuði frá staðfestingu skráningar frá Endurmenntun HÍ.
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.
Endurmenntun Háskóla Íslands
Ásdís Hjálmsdóttir Annerud íþróttasálfræðingur og frammistöðuráðgjafi
Á eigin hraða
1 klst
Áhorf
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Öll sem vilja bæta einbeitingu og frammistöðu í krefjandi aðstæðum, óháð starfsgrein eða bakgrunni