Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 10:00
Hvernig getur gervigreind auðveldað daglegt starf í opinberri þjónustu?
Námskeiðið veitir hagnýta og skýra yfirsýn yfir notkun gervigreindar í starfsemi hins opinbera, með sérstaka áherslu á ábyrgð stjórnenda, öryggi gagna, lagaramma og raunhæf notkunartilvik.
Farið er yfir hvernig gervigreind getur stutt við skilvirkni, þjónustu og einföldun verkferla, en jafnframt hvaða áskoranir fylgja notkun hennar, meðal annars varðandi persónuvernd, bjögun, áreiðanleika svara og reglur um meðferð gagna.
Á námskeiðinu eru sýnd raunveruleg dæmi um notkun gervigreindar í opinberu samhengi og þátttakendur fá verkfæri til að meta tækifæri, áhættu og næstu skref í eigin starfsemi.
Að skilja helstu hugtök og notkunarmöguleika gervigreindar.
Að þekkja tækifæri og takmarkanir gervigreindar í opinberri starfsemi.
Að geta metið áhættu tengda gagnaöryggi, persónuvernd og áreiðanleika niðurstaðna.
Að öðlast yfirsýn yfir helsta lagaramma og þróun regluverks.
Að þekkja hlutverk stjórnenda við innleiðingu gervigreindar.
Að geta hafið og staðið bakvið markvissa og ábyrga innleiðingu innan eigin starfsemi.
Fyrirlestur, umræður, hagnýt dæmi um notkun gervigreindar í raunverulegum verkefnum.
Upptaka námskeiðsins verður aðgengileg skráðum þátttakendum að námskeiði loknu á Mínar síður í viku.
Áhorf
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða