Aftur í námskeið

Isavia | Endurmenntun atvinnubílstjóra - Skyndihjálp

Lýsing

Markmið námsins er að þátttakendur tileinki sér undirstöðuatriði skyndihjálpar og geti brugðist rétt við í neyðartilfellum og tryggt öryggi á vettvangi.

Ljúka þarf fimm námskeiðum til endurmenntunar atvinnubílstjóra á hverju fimm ára gildistímabili ökuréttinda 
Hver einstaklingur má aðeins taka hvert námskeið einu sinni á fimm árum. Sjá nánar um endurmenntun atvinnubílstjóra: Samgöngustofa-endurmenntun atvinnubílstjóra

Efnistök
  • Vettvangsstjórn og öryggi
  • Skoðun, mat og virkjun frekari aðstoðar
  • Endurlífgun og viðbrögð við aðskotahlut í hálsi
  • Helstu viðbrögð við skyndilegum veikindum og slysum
  • Sálræn fyrsta hjálp
Hæfniviðmið

Að þekkja undirstöðuatriði í skyndihjálp.

Að geta stýrt og tryggt öryggi á vettvangi.

Að geta veitt sálræna fyrstu hjálp.

Gott að vita

Þetta námskeið er einungis fyrir þau sem tilheyra aðildarfélögum eða eiga rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar.

Lágmarks þátttaka til að námskeið verði haldið er 5 manns og hámarks fjöldi á hverju námskeiði er 15 manns.

Umsjón
Kristján Carlsson Gränz kennari í skyndihjálp endurmenntunar atvinnubílstjóra
Námsform
Staðnám
Tími
  • 21. júní 2026 klukkan 12:00-17:00

Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst

Lengd
5 klst
Mat
Að ljúka námskeiði
Staðsetning
Salur Reykjanesdeildar Rauða Krossins Smiðjuvöllum 9, 230 Reykjanesbæ
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Aðilar sem hafa það að atvinnu að keyra bíla í flokki C1, C, D1 og D og starfa hjá Isavia