Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 10:00
Markmið námsins er að þátttakendur tileinki sér undirstöðuatriði skyndihjálpar og geti brugðist rétt við í neyðartilfellum. Farið er yfir fjögur skref skyndihjálpar; að tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita viðeigandi aðstoð. Lögð er áhersla á að þátttakendur sýni ábyrgð á slysstað og geti tekið frumkvæði að stjórnun þar til fagaðstoð berst.
Sjá nánar um endurmenntun atvinnubílstjóra: Samgöngustofa-endurmenntun atvinnubílstjóra
Að þekkja undirstöðuatriði í skyndihjálp.
Að þekkja 4 skref skyndihjálpar; að tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp.
Að geta veitt skyndihjálp í neyðartilfellum.
Að sýna ábyrgð á slysstað og taka frumkvæði við stjórnun á vettvangi í neyðartilfellum.
Kóði er verður sendur til þátttakenda sem er notaður til að skrá sig á námskeiðið hjá Ökulandi.
Hluti námskeiðs er netnámskeið og að loknu verklegu námskeiði er tengill sendur á netnámskeiðið.
Ljúka þarf fimm námskeiðum til endurmenntunar atvinnubílstjóra á hverju fimm ára gildistímabili ökuréttinda.
Hver einstaklingur má aðeins taka hvert námskeið einu sinni á fimm árum.
Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 13.08.2026 | Skyndihjálp | 17:00-20:30 | Ökuland |