Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Fjallað verður um megingrundvöll launaútreikninga, þ.e. vinnutíma starfsfólks. Farið verður yfir lykilatriði í þeim efnum s.s. vinnutímaskipulagið, dagvinnutímabil, vaktavinnu, neysluhlé og starfshlutfall, sem og tengd atriði eins og yfirvinnu, álagsgreiðslur og sérstaka frídaga.
Að kunna skil á helstu reglum um vinnutíma, skipulag hans og önnur atriði sem ráða því hvaða forsendur eru lagðar til grundvallar launaútreikningum.
Að auka færni til að vinna með vinnutímaforsendur dagvinnufólks.
Fyrirlestur og umræður.
Jenný Þórunn Stefánsdóttir lögfræðingur hjá Sameyki
Streymi
Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
5 klst (3+2)
Mæting
37.500 kr
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Öll sem koma að starfsmanna- og kjaramálum hjá ríki og sveitarfélögum