Aftur í námskeið

Líðan, heilsa og öryggi starfsfólks

Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 10:00

Lýsing

Hvernig er hægt að stuðla að vellíðan fólks á vinnustað og auðvelda einstaklingum að ná árangri?

Á þessu námskeiði verður fjallað um líðan, heilsu og öryggi starfsfólks út frá fræðum gæðastjórnunar og vinnuverndar.

Fjallað verður um félagslega og sálræna þætti sem og vinnuaðstöðu. Einnig hvernig hæfni einstaklinga er metin og hvernig henni er viðhaldið.

Viðhorf starfsfólks til daglegra starfa og til að njóta umhverfis síns leggur grunn að góðri starfsemi skipulagsheilda. Göngum glöð til starfa alla daga!

Efnistök
  • Góður vinnustaður í gæðastjórnunarfræðum
  • Heilsa, öryggi, umhverfi
  • Viðhorf starfsfólks
  • Skýrar starfslýsingar
  • Að þekkja hlutverk sitt
  • Að þekkja hlutverk annarra
Hæfniviðmið

Að kynnast nálgun gæðastjórnunar á mannlega þættinum á vinnustöðum.
Að öðlast innsýn inn í vinnuverndarhugsun.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur

Gott að vita

Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.

Samstarfsaðili
Endurmenntun Háskóla Íslands
Umsjón
Guðrún Ólafsdóttir gæðastjóri, með M.Sc. í viðskiptafræði
Námsform
Staðnám
Tími
  • 12. nóvember 2026 klukkan 09:00-12:00

Lengd
3 klst
Mat
Mæting
Staðsetning
Endurmenntun HÍ Dunhagi 7, 107 Reykjavík
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Öll, en ekki síst gæðastjórar, öryggisstjórar, mannauðsstjórar og stjórnendur sem vilja hlúa að góðri vinnustaðamenningu, ýta undir gleði og góða samvinnu