Aftur í námskeið

Microsoft Power BI

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Hvað er Power BI?

Power BI er ný þjónusta frá Microsoft þar sem hægt er að sækja gögn frá mörgum mismunandi gagnalindum, greina þau og deila með öðrum. Á námskeiðinu er fjallað um hvað Power BI er ásamt því hvernig mælaborð eru byggð upp í Power BI Desktop.

Áhersla er lögð á vinnslu hagnýtra verkefna í gegnum allt námskeiðið og þátttakendur setja efni námskeiðsins í samhengi við þeirra daglegu störf.

Farið er í hvernig gögn eru tekin inn og hvernig þau eru sett fram á fjölbreyttan og stílhreinan máta.

Einnig er skoðað hvernig hægt er að vinna með sameiginleg gögn og skoða þau á farsímum/spjaldtölvum.

Power BI kemur í tveimur útgáfum, ókeypis og greiddri útgáfu. Notast verður við ókeypis útgáfuna á námskeiðinu þannig að ekki er þörf á því að kaupa aðgang vegna þess.

Hér má finna nánari upplýsingar um Power BI.

Efnistök
  • Grunnatriði í Microsoft Power BI
  • Innlestur og tenging gagna
  • Úrvinnsla og skipulag gagna
  • Myndræn framsetning upplýsinga
  • Mælaborð og skýrslugerð
  • Greining og túlkun gagna
  • Deiling upplýsinga og samvinna
Hæfniviðmið

Að þátttakendur öðlist grunnfærni í Power BI og geti unnið með gögn á skýran og hagnýtan hátt.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og verkefni. Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi með eigin fartölvur og hafi sett upp Microsoft Power BI Desktop. Notast verður við ókeypis útgáfuna á námskeiðinu þannig að ekki er þörf á því að kaupa aðgang vegna þess. Nánari upplýsingar um Power BI er að finna hér Power BI.

Forritið Power BI er ekki til fyrir macOS stýrikerfið, svo Apple notendur verða að gera ráðstafanir áður en mætt er á námskeiðið. Hér má lesa um nokkur slík úrræði fyrir Apple notendur.

Gott að vita

Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.

Samstarfsaðili
Endurmenntun Háskóla Íslands
Umsjón
Ásgeir Gunnarsson viðskipta- og tölvunarfræðingur og ráðgjafi hjá North Insights
Námsform
Staðnám
Tími
  • 3. nóvember 2026 klukkan 12:30-16:30
  • 4. nóvember 2026 klukkan 12:30-16:30

Lengd
8 klst (4x2)
Mat
Mæting og þátttaka
Staðsetning
Endurmenntun HÍ Dunhagi 7, 107 Reykjavík
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Öll sem hafa unnið með gögn og gagnaframsetningu eða hafa brennandi áhuga á því