Aftur í námskeið

SSH | Skyndihjálp I, fyrir starfsfólk sem vinnur með fötluðu fólki - kl. 9 - 12

Lýsing

Hvernig bregðumst við rétt við þegar eitthvað gerist skyndilega?

Þetta námskeið gefur þér einfaldar og skýrar leiðir til að bregðast við slysum og veikindum í starfi.

Í starfi á heimilum fyrir fatlaða geta komið upp aðstæður þar sem mikilvægt er að bregðast hratt og rétt við. Þetta námskeið veitir traustan grunn í skyndihjálp með áherslu á aðstæður sem geta komið upp í daglegu starfi.

Farið er yfir helstu viðbrögð við slysum og bráðatilfellum, þar á meðal endurlífgun, hvernig bregðast á við ef eitthvað fer í öndunarveg og hvernig styðja má einstakling sem missir meðvitund eða fær flog. Sérstök áhersla er lögð á hvernig aðlaga má viðbrögð að þörfum fólks með fötlun, til dæmis einstaklinga í hjólastól.

Námskeiðið byggir á einföldum og skýrum aðferðum sem hjálpa þér að halda ró, meta aðstæður og grípa til viðeigandi aðgerða.

Efnistök
  • Grundvallarreglur skyndihjálpar
  • Endurlífgun (CPR)
  • Viðbrögð við aðskotahlut í öndunarvegi
  • Skyndihjálp við meðvitundarleysi
  • Viðbrögð við flogaveikiskasti
  • Aðlögun skyndihjálpar að þörfum fólks með fötlun
Hæfniviðmið

Að þátttakendur öðlist grunnfærni í skyndihjálp og geti brugðist við af öryggi og yfirvegun þegar slys eða veikindi koma upp.
Að efla viðbragðsöryggi í daglegu starfi.

Fyrirkomulag

Umræður, fyrirlestur og verklegar æfingar.

Gott að vita

Skráðir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að láta vita ef þeir sjá ekki fram á að komast á námskeiðið. Hægt er að afskrá sig á Mínar síður eða hafa samband við skrifstofu Starfsmenntar.

Samstarfsaðili
Kópavogsbær, Mosfellsbær, Garðabær, Hafnarfjörður, Seltjarnarnes.
Umsjón
Laufey Elísabet Gissurardóttir, leiðbeinandi í skyndihjálp og formaður Þroskaþjálfafélag Íslands
Námsform
Staðnám
Tími
  • 23. júní 2026 klukkan 09:00-12:00

Lengd
3 klst
Mat
Mæting
Staðsetning
BSRB Grettisgata 89, 105 Reykjavík
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Aðeins fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnesi. Æskilegt er að starfsfólk sæki um SSH námskeiðin í samráði við sína yfirmenn.