Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 09:00
Hvernig náum við betri yfirsýn og meiri stjórn á verkefnum frá upphafi?
Verkefni eru hluti af daglegu starfi á flestum vinnustöðum, hvort sem þau eru stór eða smá. Góð verkefnastjórnun hjálpar okkur að skapa skýrari fókus, bæta samstarf og auka líkurnar á að verkefni gangi vel.
Á þessu námskeiði er farið yfir helstu grunnatriði verkefnastjórnunar á einfaldan og hagnýtan hátt. Þátttakendur læra hvernig hægt er að skilgreina verkefni, setja markmið, skipuleggja verkþætti og fylgja verkefnum eftir. Einnig er fjallað um hlutverk verkefnastjóra, samskipti í verkefnum og mikilvægi þess að halda utan um tíma, ábyrgð og forgangsröðun.
Áhersla er lögð á verkfæri og aðferðir sem auðvelt er að nýta í daglegu starfi, óháð stærð verkefna eða fyrri reynslu þátttakenda.
Að auka skilning á verkefnastjórnun og leiðum til betri árangurs.
Að geta þróað hæfni í að taka við verkefnum og leysa þau.
Kennsla fer fram með fyrirlestrum og umræðum. Tekin verða fyrir hagnýt og raunveruleg verkefni sem flest ættu að geta samsvarað sig við.
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða