Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 10:00
Viltu ná betri tökum á verkefnum þínum?
Á þessu námskeiði færð þú innsýn í grunnatriði verkefnastjórnunar og hvernig á að þróa verkefnisáætlun sem styður við markmið og árangur. Þú lærir að greina verkefni, skilgreina umfang, setja raunhæf markmið og áætla tíma og auðlindir.
Námskeiðið leggur áherslu á hagnýta nálgun sem nýtist í fjölbreyttum verkefnum, óháð stærð eða umfangi.
Námskeiðið er gott upphaf að undirbúningi fyrir IPMD D vottun og meira nám í verkefnastjórnun.
Að öðlast hæfni til að leiða verkefni og vinna í verkefnum til betri árangurs.
Að öðlast hæfni til að vinna í hópi með raunveruleg verkefni.
Kennsla fer fram með fyrirlestrum og hópæfingum þar sem nemendur takast á við aðferðafræði og beita henni á raunveruleg dæmi.
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða