Vanlíðan á vinnustað má oft greina löngu áður en fólk lætur vita af henni. Merkin eru þó ekki alltaf auðséð og mörgum reynist erfitt að bregðast við á viðeigandi hátt.
Í þessari tveggja tíma vinnustofu lærum við að þekkja algeng merki um vanlíðan á vinnustöðum og hvernig við getum brugðist við með nærgætni og af virðingu.
Við rýnum í hvernig tilfinningar birtast í vinnunni, hvernig við sem stjórnendur og samstarfsfólk getum tekið eftir breytingum og átt samtal sem styður við bætta líðan áður en vandinn stækkar.
Markmiðið er að efla vitund og færni til að byggja upp vinnuumhverfi þar sem eðlilegt er að tala um hvernig okkur líður og styðja við hvert annað.
Að geta þekkt algeng einkenni og birtingarmyndir vanlíðanar í vinnu.
Að geta skilið betur tengsl tilfinninga, hegðunar og starfsgetu.
Að geta tekið eftir og metið aðstæður þar sem samstarfsfólk gæti þurft stuðning.
Að geta átt uppbyggileg og nærgætin samtöl við samstarfsfólk eða undirmenn.
Námskeiðið byggir á virkri þátttöku. Við notum raunhæf dæmi, umræður, hópæfingar og stutt fræðileg innskot til að skapa tengingu við raunverulegar aðstæður. Lögð er áhersla á að efla skilning og færni í að taka eftir, bregðast við og tala um líðan í starfi.
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum verða afskráð hjá Starfsmennt en geta skráð sig hjá Opna háskólanum í Reykjavík.
ATH. Sæti á námskeiðið er aðeins tryggt þegar staðfesting hefur borist frá Opna háskólanum í HR.
Þóra Þorgeirsdóttir, lektor í Viðskipta- og hagfræðideild HR
Staðnám
Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
2 klst
Mæting og þátttaka
Opni háskólinn í HR Menntavegur 1, 102 Reykjavík
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Stjórnendur á öllum stigum og starfsfólk sem vinnur náið með öðrum eða öll sem vilja efla færni í að styðja við vellíðan í vinnunni.