Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Viltu fá tæki og tól í hendurnar og aukið sjálfstraust til að taka samtalið í vinnunni og ræða málin? Hvernig ræðum við það sem betur má fara, hvort sem það er frammistaða, samskipti eða fagmennska?
Á námskeiðinu er farið yfir hvernig við getum aukið færni okkar í að eiga gagnleg samtöl.
Fáa langar til að taka óþægilega samtalið og margir veigra sér við því. En aðgerðaleysinu fylgir óneitanlega sú hætta að vandamálið vaxi. Því er mikilvægt að stjórnendur búi yfir þekkingu og reynslu í að taka samtalið til að geta brugðist við þegar við á.
Samtölin geta verið mismunandi. Þau geta til dæmis verið leiðbeinandi samtöl þar sem ræða þarf ófullnægjandi frammistöðu, samskipti sem þarf að bæta eða eitthvað annað sem tengist vinnustaðnum og þarf að ræða.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fái aukinn skilning á því hvaða þættir eru mikilvægir til að eiga gott og gagnlegt samtal og auki hæfni sína í því að taka slík samtöl. Hvernig við setjum okkur sem best í spor þess sem við ræðum við og pössum upp á að gæta sálræns öryggis. Farið verður yfir undirbúning, hvað skiptir mestu máli í sjálfu samtalinu og hvernig er best að fylgja því eftir.
Þessu námskeiði er ætlað að undirbúa og þjálfa stjórnendur og færa þeim réttu verkfærin og tólin til að tækla þetta verkefni stjórnandans.
Að skilja hvað gerir samtal árangursríkt og hvaða þættir stuðla að góðri samtalsfærni
Að geta beitt markvissum aðferðum til að hefja og viðhalda uppbyggilegu samtali
Að geta átt samtal um viðkvæm eða erfið málefni með auknu sjálfstrausti
Að geta nýtt verkfæri og tól sem styrkja eigin tjáningu og hlustun í samtali Að geta rætt um ólíkar skoðanir af virðingu og með opnum huga
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 15.04.2026 | Að taka samtalið | 12:30 | Inga Þórisdóttir |