Aftur í námskeið

Árangursríkari starfsmannasamtöl

Lýsing

Á tímum stöðugra breytinga, áskorana í umhverfinu og aukinnar fjarvinnu er mikil þörf á því að eiga betri og tíðari starfsmannasamtöl við starfsmenn.

Starfsmannasamtöl eru oft vannýtt verkfæri í stjórnun og tíðari starfsmannasamtöl eru að koma í stað árlegra samtala með mjög góðum árangri. Markmið tíðari starfsmannasamtala er að tryggja betri samskipti, bæta upplýsingaflæði og veita tíðari endurgjöf.

Á námskeiðinu verður farið yfir mismunandi form og tíðni starfsmannasamtala. Fjallað verður um helstu þætti sem stuðla að því að starfsmannasamtalið verði árangursríkt. 
Hver er helsti ávinningurinn fyrir vinnustaðinn, stjórnandann og starfsmanninn. Hvernig styðjum við starfsmenn í markmiðasetningu og tryggjum eftirfylgni.

Fjallað verður um hvað felst í góðri samtalstækni og virkri hlustun. Einnig verður fjallað um hvernig við getum nýtt okkur aðferðafræði markþjálfunar í starfsmannasamtölum og hvernig er hægt að bæta endurgjöf.

Efnistök
  • Tilgangur og markmið með tíðari starfsmannasamtölum
  • Mismunandi útfærslur starfsmannasamtala
  • Undirbúningur og innleiðing
  • Samtalstækni og virk hlustun
  • Markmiðasetning og eftirfylgni
  • Endurgjöf og hrós
Hæfniviðmið

Að geta gert grein fyrir mikilvægi og tilgangi starfsmannasamtala 
Að geta tileinkað sér betri samtalstækni og hlustun
Að geta leitt starfsmannasamtöl á faglegan máta
Að geta veitt endurgjöf á viðeigandi máta
Að geta beitt fjölbreyttum aðferðum við að breyta fyrirkomulagi sem hægt er að byrja strax að vinna með

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræða

Gott að vita
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.
Umsjón
Inga Þórisdóttir stjórnendaþjálfi
Námsform
Streymi
Tími
  • 22. apríl 2026 klukkan 08:30-12:00

Lengd
3,5 klst
Mat
Þátttaka
Verð
Markhópur
Fyrir alla stjórnendur, mannauðsstjóra, verkefnastjóra og hópstjóra sem vilja ná betri árangri sem stjórnendur og vilja bæta samskipti, upplýsingagjöf og endurgjöf til starfsmanna sinna.