Aftur í námskeið

Ás styrktarfélag | Lyf og lyfjagjöf

Lýsing

Hvernig tryggjum við örugga lyfjagjöf og bregðumst rétt við þegar eitthvað óvænt gerist?

Lyfjagjöf er mikilvægur þáttur í starfi á heimilum og sambýlum fyrir fatlaða og krefst bæði nákvæmni og góðrar yfirsýnar.

Á þessu námskeiði er farið yfir helstu lyfjaflokka sem starfsfólk kemur helst að í starfi og hvernig þeir virka á líkamann.

Fjallað er um algengar aukaverkanir, hvað þarf að fylgjast með og hvernig bregðast má við ef grunur vaknar um ofskömmtun eða óæskileg viðbrögð.

Áhersla er lögð á skýra og hagnýta nálgun sem styður starfsfólk í að vinna af öryggi, með ábyrgð og með velferð skjólstæðinga að leiðarljósi.

Námskeiðið hjálpar þátttakendum að auka öryggi sitt í lyfjagjöf og styrkir faglega dómgreind í daglegum aðstæðum.

Efnistök
  • Helstu lyfjaflokkar og áhrif þeirra
  • Algengar aukaverkanir og hvað þarf að fylgjast með
  • Einkenni ofskömmtunar og fyrstu viðbrögð
  • Öryggisatriði við lyfjagjöf
  • Ábyrgð og góð vinnubrögð í daglegri framkvæmd
  • Umræður og dæmi úr raunverulegum aðstæðum
Hæfniviðmið

Að öðlast betri skilning á virkni og áhrifum algengra lyfja og geti framkvæmt lyfjagjöf af öryggi og ábyrgð

Að styrkja hæfni til að greina frávik og bregðast rétt við þegar þörf krefur

Fyrirkomulag
Fyrirlestur, umræður og rými til spurninga 
Umsjón
Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir læknir á Bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi og einn eiganda Bráðaskólans
Námsform
Staðnám
Tími
  • 7. maí 2026 klukkan 13:00-16:00

Lengd
3 klst
Mat
Mæting og þátttaka
Staðsetning
Ás styrktarfélag Ás styrktarfélag, Ögurhvarfi 6, 203 Kópavogur
Verð
Markhópur
Aðeins ætlað starfsfólki hjá Ás styrktarfélagi. Hentar bæði faglærðum sem ófaglærðum, einnig nýju starfsfólki og þeim sem vilja rifja upp og styrkja þekkingu sína

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
07.05.2026Lyf og lyfjagjöf13:00Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir