Aftur í námskeið

Ás styrktarfélag | Óhefðbundnar tjáskiptaleiðir með áherslu á Tákn með tali (TMT)

Lýsing

Á þessu námskeiði verður farið yfir helstu tjáskiptaleiðir sem notaðar eru í samskiptum við þá sem ekki ná að skilja og tjá sig nægjanlega með talmáli.

Verður m.a skoðað hvernig einfaldir hlutir geta nýst til tjáskipta og til að útbúa skipulags- og athafnatöflur.  Hvernig ýmsar gerðir af myndum og táknmyndakerfum geta nýst til tjáskipta bæði á einfaldan máta og yfir í tæknileg tjáskiptahjálpartæki.

Við munum skoða mismunandi gerð og uppbyggingu á tjáskiptatöflum sem nýtast bæði sem töflur eða bækur á borði og eða í tölvu. Sérstök áhersla verður lögð á Tákn með tali og þátttakendum kennd tákn sem nýtast vel í daglegum aðstæðum.

Efnistök
  • Mikilvægi þess að geta tjáð sig og hvaða óhefðbundnu tjáskiptaleiðir eru í boði
  • Hvernig við finnum hvaða tjáskiptaleið hentar hverju sinni
  • Hvernig getum við stutt og hvatt einstakling til að nota þá tjáskiptaleið sem hefur verið valin
  • Hvernig tengja má óhefðbundnu tjáskiptaleiðina öllum daglegum aðstæðum í leik og starfi, í vinnu, námi og fítíma
Hæfniviðmið

Að gera sér grein fyrir mikilvægi tjáskipta og hve fjölbreytt og einstaklingsbundin tjáskiptin geta verið.

Að öðlast yfirsýn yfir hvaða leiðir til tjáskipta eru færar.

Að öðlast getu og áræðni til að nýta óhefðbundu tjáskiptaleiðina  á uppbyggilegan hátt við mismunandi aðstæður.                                                                                                                                       

Fyrirkomulag

Fyrirlestur, verklegar æfingar og umræður.

Gott að vita

Skráðir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að láta vita ef þeir sjá ekki fram á að komast á námskeiðið. Hægt er að afskrá sig á Mínar síður eða hafa samband við skrifstofu Starfsmenntar.

Umsjón

Sigrún Grendal Magnúsdóttir talmeinafræðingur og ráðgjafi um óhefðbundnar tjáskiptaleiðir

Námsform

Staðnám

Tími
  • 12. nóvember 2026 klukkan 13:00-16:00

Lengd

3 klst

Mat

Mæting og þátttaka

Staðsetning

Ás styrktarfélag Ögurhvarfi 6, 203 Kópavogur

Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur

Aðeins ætlað starfsfólki hjá Ás styrktarfélagi