Aftur í námskeið

Sýslumenn | Breytingar og hvernig við tökumst á við þær saman

Lýsing

Breytingar eru óhjákvæmilegur hluti af starfsumhverfinu. Sumar ganga nánast óséðar yfir en aðrar geta verið krefjandi og haft mikil áhrif á fólk, samskipti og starfsanda. Þess vegna skiptir máli hvernig við nálgumst breytingar og hvernig við styðjum hvert annað þegar á reynir.

Við breytingar eru ekki allir alltaf sammála og þurfa heldur ekki að vera það. Mikilvægt er að skapa svigrúm fyrir ólík sjónarmið, ræða það sem veldur óvissu eða áhyggjum og leita leiða til að vinna saman að góðum árangri.

Samstarfsfólk gegnir þar mikilvægu hlutverki. Góð samskipti, traust og stuðningur geta skipt miklu um hvernig breytingar eru upplifaðar og hvort okkur tekst að varðveita og styrkja góða vinnustaðamenningu.

Í vinnustofunni fléttum við saman fræðilega þekkingu á breytingum og reynslu þátttakenda. Við lítum bæði til fortíðar og framtíðar, skoðum breytingar sem urðu nánast án þess að við tækjum eftir þeim og aðrar sem ollu verulegum titringi.

Markmiðið er uppbyggilegt og lifandi samtal um breytingar: hvernig við bregðumst við þeim, hvað hjálpar þegar á reynir og hvað við getum sjálf gert til að breytingar gangi betur. Bæði fyrir okkur sjálf og fólkið í kringum okkur.

Efnistök
  • Breytingar í starfsumhverfi og áhrif þeirra á fólk, samskipti og starfsanda
  • Fræðileg umfjöllun um breytingar og reynsla þátttakenda af þeim
  • Ólík sjónarmið, óvissa og áhyggjur og hvernig skapa má svigrúm fyrir það
  • Hlutverk samstarfsfólks: samskipti, traust og stuðningur við breytingar
  • Hvað hjálpar þegar á reynir og hvað við getum sjálf gert til að breytingar gangi betur og vinnustaðamenning styrkist
Hæfniviðmið

Að skilja hvernig breytingar geta haft áhrif á fólk, samskipti og starfsanda.
Að greina eigin viðbrögð við breytingum og skilja ólík viðbrögð annarra.
Að geta rætt óvissu, áhyggjur og ólík sjónarmið á opinn og uppbyggilegan hátt.
Að þekkja leiðir til að styðja samstarfsfólk og efla traust á krefjandi tímum.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður.

Umsjón

Eyþór Eðvarðsson þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun

Námsform

Streymi

Tími
  • 15. október 2026 klukkan 09:00-11:00

Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst

Lengd

2 klst

Mat

Mæting og þátttaka

Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur

Starfsfólk sýslumannsembættanna