Viltu búa til fallegt og áhrifaríkt efni án þess að vera grafískur hönnuður?
Canva er notendavænt hönnunarforrit, með ókeypis aðgangi, sem gerir þér kleift að búa til fjölbreytt efni hvort sem er fyrir vinnu, nám eða persónuleg verkefni.
Námskeiðið leiðir þig í gegnum grundvallaratriði forritsins og þú lærir að nota tilbúið sniðmát, breyta myndefni með gervigreind og aðlaga hönnun að þínum þörfum.
Með Canva lærir þú að hanna efni sem miðlar skýrum skilaboðum, með faglegu útliti sem fangar athygli. Þú getur búið til kynningar, myndbönd, bæklinga, efni fyrir samfélagsmiðla, ferilskrár og jafnvel einfaldar vefsíður.
Að auka færni til að hanna eigið margmiðlunarefni með Canva á einfaldan og áhrifaríkan hátt
Að efla sjálfstraust í notkun hönnunarverkfæra til að miðla skilaboðum á sjónrænan hátt
Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni er opið í 12 mánuði frá skráningu.
Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og annað kennsluefni.
Kennarinn er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S. 788 8805 / kennari@nemandi.is.
Þátttaka
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.