Á námskeiðinu er farið yfir helstu lagaskyldur og skipulag sem snerta atvinnubílstjóra. Fjallað er um aksturs- og hvíldartíma, leyfisveitingar og þær reglur sem gilda um flutninga á farþegum og farmi í atvinnuskyni. Einnig er farið yfir hlutverk þeirra stofnana sem stýra flutningamálum og hvaða viðurlög liggja við umferðarbrotum. Markmiðið er að tryggja að bílstjórar starfi í samræmi við lög og þekki réttindi sín og skyldur í starfi.
Ljúka þarf fimm námskeiðum til endurmenntunar atvinnubílstjóra á hverju fimm ára gildistímabili ökuréttinda. Hver einstaklingur má aðeins taka hvert námskeið einu sinni á fimm árum. Sjá nánar um endurmenntun atvinnubílstjóra: Samgöngustofa-endurmenntun atvinnubílstjóra
Að þekkja helstu atriði í lögum og reglum um vöru- og farþegaflutninga og um stór ökutæki sem atvinnutæki.
Að gera sér grein fyrir ábyrgð bílstjóra á ástandi og notkun ökutækis á hverjum tíma.
Vefnám - hægt er að skrá sig hvenær sem er. Þátttakendur hafa 48 klst. til að ljúka námskeiðinu.
Kóði verður sendur til þátttakenda sem er notaður til að skrá sig á námskeiðið hjá Ökulandi.
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar geta skráð sig hjá Ökulandi.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða