Aftur í námskeið

Isavia - Endurmenntun atvinnubílstjóra - Öryggi - Farþegaflutningar

Lýsing

ATH. atvinnubílstjórar skrá sig á námskeiðið hjá Starfsmennt. Kóði er síðan sendur til þátttakenda sem þau nota til að skrá sig á námskeiðið hjá Ökulandi

Markmið námsins er að búa hópbifreiðastjóra undir kröfur starfsins með áherslu á faglega aksturstækni og ríka ábyrgð gagnvart farþegum. Lögð er áhersla á að nemendur tileinki sér mjúkan akstur sem tryggir þægindi og öryggi fólks flutningi, auk þess að þekkja ítarlega þau ákvæði laga og reglugerða sem gilda um farþegaflutninga og sértækan búnað hópbifreiða.
Bílstjórar skulu átta sig á lykilhlutverki sínu sem þjónustuaðilar, þar sem fagleg framkoma og samskiptahæfni eru undirstaða góðrar upplifunar farþega. Jafnframt er leitast við að efla vitund um náttúruvernd og ferðamennsku, þannig að bílstjórar starfi í sátt við umhverfið og sýni ábyrga hegðun á viðkvæmum ferðamannastöðum.

Sjá nánar um endurmenntun atvinnubílstjóra: Samgöngustofa-endurmenntun atvinnubílstjóra

Efnistök

Fagleg aksturstækni
Öryggi og lagaskylda
Þjónusta og samskipti
Umhverfisvitund og ferðaþjónusta
Starfsábyrgð

Hæfniviðmið

Að þekkja atriði er lúta sérstaklega að akstri hópbifreiða og farþegaflutningum Að þekkja ábyrgð bílstjóra á öryggi farþega
Að þekkja þjónustuhlutverk bílstjóra Að þekkja til náttúruverndar og ferðamennsku Að þekkja ákvæði í lögum og reglum um flutning farþega og sérbúnað hópbifreiða

Fyrirkomulag
Vefnám - hægt er að skrá sig hvenær sem er. Þátttakendur hafa 48 klst. til að ljúka námskeiðinu
Gott að vita

Ljúka þarf fimm námskeiðum til endurmenntunar atvinnubílstjóra á hverju fimm ára gildistímabili ökuréttinda 
Hver einstaklingur má aðeins taka hvert námskeið einu sinni á fimm árum

Umsjón
Ökuland
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
7 klst
Mat
Að ljúka námskeiði á 48 klukkustundum
Verð
Markhópur
Aðilar sem hafa það að atvinnu að keyra bíla í flokki C1, C, D1 og D og eru aðildarfélagar Starfsmenntar