Aftur í námskeið

Isavia - Endurmenntun atvinnubílstjóra - Öryggi - Vöruflutningar

Lýsing

ATH. atvinnubílstjórar skrá sig á námskeiðið hjá Starfsmennt. Kóði er síðan sendur til þátttakenda sem þau nota til að skrá sig á námskeiðið hjá Ökulandi

Lögð er áhersla á að nemendur öðlist færni í að ganga frá farmi á öruggan hátt og kunni að nota viðeigandi festibúnað fyrir mismunandi tegundir farms. Markmiðið er að tryggja að hleðsla raski ekki jafnvægi ökutækis og valdi ekki hættu í umferðinni. Jafnframt er farið yfir reglur um notkun farm- og fylgiskjala, hvort sem um er að ræða flutninga innanlands eða á milli landa, svo bílstjórar séu færir um að fylgja opinberum kröfum um skráningu og flutningsskilmála.

Sjá nánar um endurmenntun atvinnubílstjóra: Samgöngustofa-endurmenntun atvinnubílstjóra

Efnistök

Öruggur frágangur farms
Stöðugleiki og umferðaröryggi
Farm- og fylgiskjöl
Opinberar kröfur

Hæfniviðmið

Að þekkja hvernig ganga á frá farmi af öryggi og festa mismunandi tegundir farms
Að þekkja reglur um notkun farm- og fylgiskjala sem krafist er í flutningum bæði innanlands sem og á milli landa

Fyrirkomulag
Vefnám - hægt er að skrá sig hvenær sem er. Þátttakendur hafa 48 klst. til að ljúka námskeiðinu
Gott að vita

Ljúka þarf fimm námskeiðum til endurmenntunar atvinnubílstjóra á hverju fimm ára gildistímabili ökuréttinda 
Hver einstaklingur má aðeins taka hvert námskeið einu sinni á fimm árum

Umsjón
Ökuland
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
7 klst
Mat
Að ljúka námskeiði á 48 klukkustundum
Verð
Markhópur
Aðilar sem hafa það að atvinnu að keyra bíla í flokki C1, C, D1 og D og eru aðildarfélagar Starfsmenntar