Lögð er áhersla á að bílstjóri skilji að þekking og færni er undirstaða fagmennsku. Bílstjórinn þekki þætti í daglegu lífi og starfsumhverfi sem hafa áhrif á öryggi hans, heilsufar, andlega og líkamlega líðan.
Hann þekki einkenni þreytu og streitu og viðbrögð þar við. Hann skilji ferli skynjunar, hegðun manna í umferðinni og mikilvægi sálrænna þátta í umferðar- og vinnuslysum.
Ljúka þarf fimm námskeiðum til endurmenntunar atvinnubílstjóra á hverju fimm ára gildistímabili ökuréttinda. Hver einstaklingur má aðeins taka hvert námskeið einu sinni á fimm árum. Sjá nánar um endurmenntun atvinnubílstjóra: Samgöngustofa-endurmenntun atvinnubílstjóra
Að þekkja meginreglur vinnuvistfræðinnar og hvernig draga má úr andlegum og líkamlegum afleiðingum vinnuálags.
Að skilja samhengi milli umhverfis, ökutækis og mannlegra þátta með tilliti til umferðaröryggis.
Að skilja eðli skynjunar og mannleg viðbrögð við ýmsum aðstæðum.
Að gera sér grein fyrir þýðingu þess að veita góða þjónustu, hvort sem verið er að flytja vörur eða farþega.
Að þekkja og tileinka sér þá þætti sem gera bílstjóra að fagmanni.
Kóði er verður sendur til þátttakenda sem er notaður til að skrá sig á námskeiðið hjá Ökulandi.
Vefnám - hægt er að skrá sig hvenær sem er. Þátttakendur hafa 48 klst. til að ljúka námskeiðinu.
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar geta skráð sig hjá Ökulandi.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða