ATH. atvinnubílstjórar skrá sig á námskeiðið hjá Starfsmennt. Kóði er síðan sendur til þátttakenda sem þau nota til að skrá sig á námskeiðið hjá Ökulandi
Á námskeiðinu er farið yfir hugmyndafræði vistaksturs og hvernig bílstjórar geta lágmarkað eldsneytiseyðslu og umhverfismengun með réttri tækni. Lögð er áhersla á að nemendur tileinki sér aksturslag sem hámarkar öryggi þeirra sjálfra og annarra vegfarenda, þar sem vistvæn og örugg nálgun fara saman við daglegan akstur.
Sjá nánar um endurmenntun atvinnubílstjóra: Samgöngustofa-endurmenntun atvinnubílstjóra
Örugg frágangur farms
Stöðugleiki og umferðaröryggi
Farm- og fylgiskjöl
Opinberar kröfur
Að þekkja hugmyndafræði vistaksturs
Að þekkja með hvaða hætti hægt er að lágmarka eldsneytiseyðslu og umhverfismengun
Að þekkja hvernig hægt er að hámarka öryggi sitt og annarra í umferðinni með réttu aksturslagi
Ljúka þarf fimm námskeiðum til endurmenntunar atvinnubílstjóra á hverju fimm ára gildistímabili ökuréttinda
Hver einstaklingur má aðeins taka hvert námskeið einu sinni á fimm árum
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.