Skráning á þetta námskeið opnar þann 6. ágúst 2026 klukkan 10:00
Starfar þú við félags- eða heilbrigðisþjónustu?
Í Félagsliðagátt getur þú bætt við þig þekkingu sem nýtist strax í starfi. Námið sameinar fræði og verklega nálgun á aðgengilegan hátt, og þú byggir jafnt og þétt upp fagmennsku, öryggi og færni til að takast á við fjölbreytt verkefni í heilbrigðis- og félagsþjónustu. Námið er skipulagt þannig að þú getur auðveldlega samræmt það vinnu og daglegu lífi.
Að efla hæfni sína í faglegum og virðingarríkum samskiptum í starfi.
Að dýpka skilning sinn á ólíkum aðstæðum fólks og mikilvægi umhyggju og virðingar.
Að auka þekkingu sína á öldrunarferlinu og þeim breytingum sem fylgja hækkandi aldri.
Að styrkja skilning sinn á uppbyggingu og hlutverki félagslegrar þjónustu.
Þú hlustar á fyrirlestra heima og tekur svo þátt í verkefnatímum einu sinni í viku á miðvikudögum frá kl. 17:15–20:15. Nemendur geta valið að mæta í tíma í húsnæði Fræðslunetsins á Selfossi eða á Teams. Tekinn er einn áfangi í einu sem stendur yfir í 3-5 vikur.
Í félagsliðagátt lýkur þú fjórum önnum af sex í námi félagsliða en til að fá starfsréttindi þarftu að klára síðustu tvær annirnar frá framhaldsskóla.
Til að geta sótt um þarft þú að vera 22 ára eða eldri, að hafa unnið að lágmarki eitt ár í fullu starfi í umönnunarstörfum og að hafa lokið um 190 klst. af starfstengdum námskeiðum.
Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga og samstarfssjóða Starfsmenntar geta skráð sig hér í námið og við komum skráningunni áfram til Fræðslunetsins þar sem námið er kennt. Aðrir verða að skrá sig hjá Fræðslunetinu,
Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða