Aftur í námskeið

Gervigreind

Lýsing

Gervigreind er að breyta heiminum og við þurfum að sætta okkur við það, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Á þessu námskeiði er farið yfir óttann sem fylgir gervigreindinni og hvernig við getum nýtt hana okkur í hag.

Til þess að ná forskoti þurfum við að ganga í gegnum hugarfarsbreytingu og tileinka okkur dýrmæta færni framtíðarinnar. Hér er farið yfir raunverulega getu tækninnar í dag og hvernig árangursrík samskipti við hana geta kallað fram bestu svörin. 

Með því að breyta gervigreind í persónulegan aðstoðarmann má finna aðferðir sem spara tíma og auka skilvirkni í vinnu og daglegu lífi. Við skoðum hvernig þú getur lýst hugmyndum þínum og látið gervigreindina vinna verkið - jafnvel þótt þú hafir aldrei snert forritun. 

Að lokum er rýnt í stærstu flöskuhálsana og sýnt fram á hvers vegna það er oft ekki tæknin sjálf sem stendur í vegi fyrir árangri - heldur hugarfarið.

Efnistök
  • Geta gervigreindarinnar í dag
  • Hugarfar og framtíðarfærni
  • Skilvirkni og hagnýtar lausnir
  • Aðstoð í starfi og daglegu lífi
Hæfniviðmið

Að þekkja hvernig hugmynd verður að veruleika með gervigreind.
Að skilja hvað skiptir máli þegar unnið er með gervigreind.
Að skilja hvaða færni gefur þér forskot í notkun gervigreindar.
Að geta beitt gervigreind í daglegu starfi og lífi til að vinna hraðar og skarpar.

Fyrirkomulag

Þú getur tekið námskeiðið á eigin hraða og færð aðgang að því hjá Frama. Aðgangur telst þó ekki öruggur fyrr en þú hefur fengið staðfestingarpóst frá Frama.

Gott að vita

Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum geta skráð sig hjá Frama.

Umsjón
Gísli Ragnar Guðmundsson sérfræðingur hjá Almannarómi
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
1,5 klst
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Öll sem hafa áhuga á málefninu