Í náminu eykur þú færni þína og þekkingu á aðstæðum og þörfum skjólstæðinga þinna til að efla lífsgæði þeirra og virkni. Lögð er áhersla á sjálfseflingu, lífsgæði og réttindi skjólstæðinga og starfsfólks.
Námið er skipulagt í samræmi við námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og er 210 klukkustundir.
Nánar um námið hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.
Kennsla fer fram í vefnámi á Teams á mánudögum og miðvikudögum kl. 17-20. Staðlotur verða einu sinni í mánuði í húsnæði MSS að Krossmóa 4a, 230 Reykjanesbæ, 3. hæð. Mögulegt er að hlusta á upptökur eftir á en þá þarf að skila inn ígrundun og verkefni um efni tímans.
Námið fer fram á íslensku en boðið er upp á stoðtíma einu sinni í viku á ensku og spænsku.
Nánari upplýsingar um námið veita Nanna Bára og Hólmfríður í síma 4217500 eða í tölvupósti nanna@mss.is / namskeid@mss.is.
Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga og samstarfssjóða Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið. Aðrir verða að skrá sig hjá MSS.
Námi lýkur 16. desember 2026. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða