Námskeið finnst ekki

Aftur í námskeið

Hvernig á að fara með beiðni um aðgang að gögnum? Praktísk álitaefni

Lýsing

Á námskeiðinu verður farið yfir kröfur um form- og efni beiðna um aðgang að gögnum og hvernig stjórnvöld geta best liðsinnt borgaranum í þessu skyni. Þá verður einnig fjallað um þær áskoranir sem stjórnvöld standa frammi fyrir þegar aðili máls biður um aðgang að gögnum í máli sem inniheldur mikið magn gagna, t.d. við ráðningu í starf þegar umsækjendur eru margir. Vikið verður að því hvort stjórnvald geti að einhverju leyti tekið mið af umfangi máls við slíkar aðstæður og hvernig best er að leysa úr því.

Efnistök
  • Form og efni beiðna um gagnaaðgang
  • Stuðningur stjórnvalda við borgarann
  • Meðferð beiðna þegar gagnamagn er mikið (t.d. ráðningar)
  • Svigrúm stjórnvalda og lausnir í flóknum málum
Hæfniviðmið

Að kunna skil á helstu reglum sem gilda um hvenær stofnanir þurfa að afhenda gögn í sinni vörslu
Að hafa þekkingu á þeim úrræðum sem eru til staðar við að gera meðferð beiðna auðveldari, fljótlegri og skilvirkari

Fyrirkomulag

Námskeiðið er í beinu streymi en upptaka verður aðgengileg eftir að því lýkur.

Gott að vita

Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Stofnun stjórnsýslufræða HÍ. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála HÍ.

Umsjón
Kjartan Bjarni Björgvinsson, dómari við Landsrétt
Námsform
Streymi
Tími
  • 18. maí 2026 klukkan 13:00-16:30

Lengd
3,5 klst
Mat
Mæting
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Öll sem starfa hjá opinberum stofnunum eða sveitarfélögum og þurfa að svara beiðnum um aðgang að gögnum samkvæmt stjórnsýslu- og upplýsingalögum eða öðrum lögum

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
18.05.2026Hvernig á að fara með beiðni um aðgang að gögnum? Praktísk álitaefni13:00-16:30Kjartan Bjarni Björgvinsson