Markmið námsins er að þátttakendur tileinki sér undirstöðuatriði skyndihjálpar og geti brugðist rétt við í neyðartilfellum. Farið er yfir fjögur skref skyndihjálpar; að tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita viðeigandi aðstoð. Lögð er áhersla á að þátttakendur sýni ábyrgð á slysstað og geti tekið frumkvæði að stjórnun þar til fagaðstoð berst.
Ljúka þarf fimm námskeiðum til endurmenntunar atvinnubílstjóra á hverju fimm ára gildistímabili ökuréttinda. Sjá nánar um endurmenntun atvinnubílstjóra: Samgöngustofa-endurmenntun atvinnubílstjóra
Að þekkja undirstöðuatriði í skyndihjálp Að þekkja 4 skref skyndihjálpar; að tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp Að geta veitt skyndihjálp í neyðartilfellum Að sýna ábyrgð á slysstað og taka frumkvæði við stjórnun á vettvangi í neyðartilfellum
Kóði er verður sendur til þátttakenda sem er notaður til að skrá sig á námskeiðið hjá Ökulandi
Hluti námskeiðs er netnámskeið og að loknu verklegu námskeiði er tengill sendur á netnámskeiðið. Netnámskeiðið er 3.5 klst.
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar geta skráð sig hjá Ökulandi.
Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 08.06.2026 | Skyndihjálp | 17:00-20:30 | Ökuland |