Aftur í námskeið

Notkun á Claude á hagnýtan hátt

Lýsing

Claude er eitt öflugasta gervigreindartækið í dag og hentar vel fyrir texta- og gagnavinnu, skýrslugerð og flóknari verkefni.

Þetta námskeið er hannað fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref og vilja læra að nota Claude af öryggi í daglega starfinu án þess að eyða tíma í óþarfa tæknipælingar.

Farið er í gegnum helstu eiginleika Claude með praktískum æfingum. Áherslan er á raunveruleg dæmi úr vinnuumhverfinu: hvernig á að spyrja réttu spurninganna (prompting), vinna úr gögnum og texta, og nýta sjálfvirka agenta (AI agents) til að einfalda og flýta fyrir flóknari ferlum.

Efnistök
  • Hvernig Claude virkar og hvernig þú færð sem best svör með réttri uppbyggingu fyrirmæla (prompt engineering)
  • Hvernig á að nýta Claude til að draga saman langar skýrslur, greina PDFskjöl, yfirfara texta og skrifa markvissan póst
  • Kynning á því hvernig Claude getur starfað sem sjálfstæður aðstoðarmaður, keyrt flóknari verkferla, fylgt reglum og leyst sérhæfð verkefni
  • Hvernig á að byggja upp sértæk verkefnasvæði og sniðmát í Claude til að halda utan um samræmd vinnubrögð og vörumerkjaáherslur
  • Hvers ber að gæta þegar unnið er með gögn og upplýsingar fyrirtækja
Hæfniviðmið

Að geta notað Claude á markvissan hátt við fjölbreytt verkefni í daglegu starfi.
Að geta sett fram skýr fyrirmæli og nýta Claude við texta-, skjala- og gagnavinnslu.
Að geta nýtt helstu eiginleika Claude til að einfalda vinnuferla og leysa flóknari verkefni.
Að geta notað Claude á ábyrgan hátt með hliðsjón af upplýsingaöryggi og trúnaði.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og verkefni

Gott að vita

Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum verða afskráð hjá Starfsmennt en geta skráð sig hjá Opna háskólanum í Reykjavík.

ATH. Sæti á námskeiðið er aðeins tryggt þegar staðfesting hefur borist frá Opna háskólanum.

Samstarfsaðili

Opni háskólinn í HR

Umsjón

Stefán Ólafsson Dósent við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík

Námsform

Staðnám

Tími
  • 22. október 2026 klukkan 09:00-12:00

Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst

Lengd

3 klst

Mat

Mæting og þátttaka

Staðsetning

Opni háskólinn í HR Menntavegur 1, 102 Reykjavík

Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur

Öll sem vill ná tökum á Claude og nýta tæknina til að auka gæði og spara tíma í sínum verkefnum. Námskeiðið miðast við byrjendur og enga kröfu um forþekkingu á gervigreind.