Aftur í námskeið

Notkun gervigreindar í stjórnsýslunni - möguleikar og takmarkanir

Lýsing

Á námskeiðinu er fjallað um grunnatriði og hagnýtingu skapandi gervigreindar (e. generative AI) innan stjórnsýslunnar. Farið er yfir tæknilega innviði stórra tungumálalíkana, svo sem ChatGPT, og hvernig hægt er að nýta þau til að styðja við stjórnsýsluframkvæmd og tryggja samræmi í matskenndum ákvörðunum.

Sérstök áhersla er lögð á þau álitaefni sem stjórnvöld standa frammi fyrir við innleiðingu tækninnar. Fjallað er um kröfur varðandi persónuvernd, reglur stjórnsýsluréttar og þær auknu kröfur sem fylgja væntanlegri gervigreindarreglugerð ESB.

Þá er einnig kafað ofan í þær hættur sem fylgja notkun skapandi gervigreindar í opinberum rekstri. Sérstök áhersla er lögð á mikilvægi gagnsæis í stjórnsýslu og hvernig tryggja megi jafnræði borgaranna þegar tæknin er nýtt við ákvarðanatöku.

Farið verður yfir lærdómsrík dæmi frá hinum Norðurlöndunum, þar sem reynsla af innleiðingu gervigreindar við eftirlit og undirbúning ákvarðana er skoðuð. Greind verða þau vandamál sem hafa komið upp og hvernig stjórnvöld geta forðast algengar gryfjur við innleiðingu nýrra lausna.

Efnistök
  • Eðli skapandi gervigreindar
  • Þjálfun og stilling líkana
  • Lagarammi
  • Siðfræði og réttindi
  • Vandamál í framkvæmd
Hæfniviðmið
Að öðlast þekkingu á hvernig nýta megi gervigreind í stjórnsýslunni án þess að fara á svig við gildandi lagareglur á sviði stjórnsýslu- og persónuverndarréttar
Fyrirkomulag

Námskeiðið er í beinu streymi og einnig verður upptaka af því aðgengileg eftir að því lýkur

Gott að vita

Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Stofnun stjórnsýslufræða HÍ. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála HÍ.

Umsjón
Kjartan Bjarni Björgvinsson Dómari við Landsrétt
Námsform
Streymi
Tími
  • 27. apríl 2026 klukkan 13:00-16:30

Lengd
3,5 klst
Mat
Mæting
Verð
Markhópur
Námskeiðið er ætlað öllu starfsfólki í stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga sem vill öðlast þekkingu á hvernig nýta megi gervigreind í stjórnsýslunni án þess að fara á svig við gildandi lagareglur á sviði stjórnsýslu- og persónuverndarréttar

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
27.04.2026Notkun gervigreindar í stjórnsýslunni - möguleikar og takmarkanir13:00Kjartan Bjarni Björgvinsson