Aftur í námskeið

Raki og mygla í húsum 1 - VEF

Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 10:00

Lýsing

Námskeiðið er fyrir þau sem þurfa að eiga við og þekkja vandamál sem stafa af raka og myglu í húsum.

Á námskeiðinu verður fjallað um raka í húsnæði og myglusveppi sem iðulega fylgja viðvarandi raka í byggingarefnum.

Farið verður yfir helstu galla á byggingarfræðilegum lausnum og helstu mistök við byggingu húsa sem orsaka leka- og rakavandamál í húsum og hvernig megi koma í veg fyrir þau.

Farið verður lauslega í loftun og útreikninga á rakastreymi gegnum byggingarhluta.

Fjallað verður um byggingarraka og greiningu rakaskemmda og lífsskilyrði myglusveppa, hvar þeir þrífast og hvernig má finna þá og uppræta.

Efnistök
  • Raki í húsnæði og myglusveppir sem iðulega fylgja viðvarandi raka í byggingarefnum
  • Helstu gallar á byggingarfræðilegum lausnum
  • Helstu mistök við byggingu húsa sem orsaka leka- og rakavandamál í húsum og hvernig megi koma í veg fyrir þau
  • Loftun og útreikningar á rakastreymi gegnum byggingarhluta
  • Byggingarraki og greining rakaskemmda
  • Lífsskilyrði myglusveppa, hvar þeir þrífast, hvernig má finna þá og uppræta
Hæfniviðmið

Að þekkja helstu orsakir leka í húsum og hvað veldur þeim.
Að þekkja afleiðingar raka í húsnæði í formi myglusveppa.
Að geta greint helstu gerðir myglu í húsum.
Að þekkja loftun byggingarhluta.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og verkefnavinna.

Gott að vita

Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum verða afskráð hjá Starfsmennt en geta skráð sig hjá Iðan Fræðslusetri

Samstarfsaðili
Iðan fræðslusetur
Umsjón
Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, líffræðingur og Kristinn Alexandersson, byggingatæknifræðingur
Námsform
Streymi
Tími
  • 24. september 2026 klukkan 13:00-19:00

Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst

Lengd
6 klst
Mat
Mæting og þátttaka
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Byggingaraðilar, einnig umsjónar- og rekstraraðilar fasteigna/bygginga