Aftur í námskeið

Raki og mygla í húsum 2 - VEF

Lýsing

Ath. Einnig hægt að skrá sig á staðnámskeið HÉR.

Farið er yfir aðferðir til að meta myglu, mæla raka í byggingarefnum og fara yfir túlkun niðurstaðna. Kynntar verða lauslega niðurstöður rannsókna vegna efnanotkunar og annarra aðferða við hreinsun á myglu.

Fjallað verður um enduruppbyggingu og verkferla við hreinsun á afmörkuðum rýmum og bent á atriði til umhugsunar við notkun byggingarefna.

Æskilegt er að þátttakendur hafi setið fyrra námskeiðið Raki og mygla í húsum 1 en er þó ekki skilyrði.

Efnistök
  • Aðferðir til að meta myglu, mæla raka í byggingarefnum og fara yfir túlkun niðurstaðna
  • Niðurstöður rannsókna vegna efnanotkunar og annarra aðferða við hreinsun á myglu
  • Enduruppbyggin og verkferlar við hreinsun á afmörkuðum rýmum og bent á atriði til umhugsunar við notkun byggingarefna
Hæfniviðmið

Að þekkja helstu aðferðir við hreinsun á raka- og myglusvæðum.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og verkefnavinna.

Gott að vita

Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum verða afskráð hjá Starfsmennt en geta skráð sig hjá Iðan Fræðslusetri.

Samstarfsaðili
Iðan fræðslusetur
Umsjón
Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, líffræðingur og Kristinn Alexandersson, byggingatæknifræðingur
Námsform
Streymi
Tími
  • 15. október 2026 klukkan 13:00-19:00

Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst

Lengd
6 klst
Mat
Mæting og þátttaka
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Byggingarmenn, einnig umsjónar- og rekstraraðilar fasteigna/bygginga