Aftur í námskeið

SSH - Starfshættir í þjónustu við einstaklinga með fötlun

Lýsing

Hvað er mikilvægt að kunna þegar þú byrjar í starfi með fólki með fötlun?

Þegar hafið er starf með fólki með fötlun skiptir máli að hafa góða yfirsýn yfir hlutverk sitt, ábyrgð og þau gildi sem starfið byggir á. Þetta námskeið er ætlað nýju starfsfólki og veitir hagnýta og aðgengilega innsýn í helstu grunnþætti starfsins.

Farið er yfir hugmyndafræði þjónustunnar, réttindi fólks með fötlun og hvaða lög og reglur liggja til grundvallar. Einnig er fjallað um samskipti, hvernig við getum haft jákvæð áhrif á hegðun og hvernig við byggjum upp góðan starfsanda.

Áhersla er lögð á að þátttakendur skilji hvernig daglegar ákvarðanir og framkoma hafa áhrif á líðan og réttindi þeirra sem njóta þjónustunnar.

Efnistök
  • Hugmyndafræði þjónustu og helstu lög og reglur
  • Réttindi fólks með fötlun
  • Þjónandi leiðsögn og samskipti
  • Hvernig hafa má áhrif á hegðun á uppbyggilegan hátt
  • Réttindi og skyldur starfsfólks
  • Starfsánægja og jákvæð vinnustaðamenning
  • Öryggi í starfi og viðbrögð við krefjandi aðstæðum
Hæfniviðmið

Að þátttakendur öðlist skýran skilning á grunnatriðum starfsins og geti unnið af öryggi, ábyrgð og fagmennsku frá upphafi

Að styðja við góð samskipti og virðingu í starfi

Fyrirkomulag

Fyrirlestrar

Námsform
Staðnám
Tími
  • 20. apríl 2026 klukkan 09:00-15:15

Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.

Lengd
6,25 klst
Mat

Mæting og þátttaka

Staðsetning
BSRB Grettisgata 89, 105 Reykjavík
Verð
Markhópur
Aðeins fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnesi. Æskilegt er að starfsfólk sæki um SSH námskeiðin í samráði við sína yfirmenn

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
20.04.2026Hugmyndafræði, lög og reglugerðir09:00 - 10:00Ástríður Helga Erlendsdóttir
20.04.2026Kaffi pása10:00 - 10:15
20.04.2026Þjónandi leiðsögn í lífi einstaklinga með fötlun10:15 - 11:15Arne Friðrik Karlsson
20.04.2026Myndband: Réttindi fatlaðs fólks11:15 - 11:30Sendiherrar SÞ
20.04.2026Hádegishlé11:30 - 12:30
20.04.2026Að hafa áhrif á hegðun12:30 - 13:00Jóhanna Lilja Ólafsdóttir
20.04.2026Réttindi og skyldur starfsmanna13:00 - 13:30Jóhanna Lilja Ólafsdóttir
20.04.2026Kaffi pása13:30 - 13:45
20.04.2026Starfsánægja og vinnustaðamenning13:45 - 14:30Ingrid Kuhlman
20.04.2026Líkamsbeiting14:30 - 15:15Ásgerður Guðmundsdóttir