Skráning á þetta námskeið opnar þann 4. ágúst 2026 klukkan 13:00
Örugg meðhöndlun matvæla er mikilvægur þáttur í að vernda heilsu og vellíðan þeirra sem njóta þjónustunnar.
Á þessu námskeiði fá þátttakendur hagnýta þekkingu á öruggri meðhöndlun matvæla og þeim atriðum sem skipta máli til að draga úr hættu á mengun, smiti og matarsjúkdómum.
Fjallað er um hvernig góð vinnubrögð, rétt geymsla og vandað hreinlæti stuðla að auknu öryggi frá innkaupum til framreiðslu.
Einnig er farið yfir helstu hættur sem geta tengst matvælum, mikilvægi hitastigs við matreiðslu og geymslu, sem og hvernig bregðast má við ofnæmisvöldum í mat.
Að auka skilning á meðhöndlun matvæla og matvælaöryggi Að læra samræmd vinnubrögð Öðlast aukið sjálfstraust í eldhúsinu
Að efla öryggi og sjálfstraust starfsfólks í daglegri meðhöndlun matvæla og stuðla að góðum og öruggum vinnubrögðum.
Skráðir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að láta vita ef þeir sjá ekki fram á að komast á námskeiðið. Hægt er að afskrá sig á Mínar síður eða hafa samband við skrifstofu Starfsmenntar.
Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
Mæting, þátttaka
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða