Starfsmennt býður þér að taka þátt í rýnifundi sem fjallar um fræðsluþarfir millistjórnenda hjá ríkinu. Um er að ræða fund þar sem áhersla verður lögð á virkt samtal milli þátttakenda og ætlar Starfsmennt síðan að nota niðurstöðurnar til að útbúa sértæka fræðslu fyrir hópinn.
Staðfundur í húsnæði Starfsmenntar Skipholti 50b, 3. hæð.