Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Á þessu námskeiði byggir þú ofan á grunninn í Excel I.
Á þessu námskeiði lærir þú að nota flóknari gagnavinnsluföll (e. functions), síur og gagnaprufun. Þú kynnist mikilvægustu gagnavinnsluföllunum, snúningstöflum (e. Pivot), lærir á uppflettiföll, leitar- og rökfræðiföll. Þú lærir að sækja gögn í gagnavinnslukerfi og hvernig á að raða þeim og sía (e. Data Validation) ásamt því að læra á tengingar milli skjala og innan vinnubókar, verndun og læsingu gagna, fjölvavinnslu (Macros) og gerð þeirra og fjármálaföll.
Að geta notfært sér ýmiss gagnavinnsluföll.
Að geta notað gagnavinnslukerfi á nytsamlegan hátt.
Að geta notfært sér ýmiss gagnavinnsluföll.
Að geta notað gagnavinnslukerfi á nytsamlegan hátt.
Kennarinn veitir þér aðgang a rafrænu netskólakerfi. Þar skoðar þú námsefnið og leysir verkefni rafrænt. Námskeiði stendur yfir í 3 vikur en stuðningur er veittur að því loknu. Þú hefur aðgang að námsefninu allt skólaárið.
Námskeiðið stendur starfsmönnum Skattsins til boða án kostnaðar og skerðir ekki einstaklingsrétt.
Tölvuskólinn Nemandi
Bjartmar Þór Hulduson
Á eigin hraða
0 klst
Verkefnaskil
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Starfsfólk hjá Skattinum