Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Góð þjónustustjórnun hjá fyrirtækjum og stofnunum er lykillinn að ánægju viðskiptavina og stuðlar að samkeppnishæfni og jákvæðri aðgreiningu. Þjónustustjórnun er þörf til að tryggja að ekki verði þjónustufall með tilheyrandi kostnaði.
Á námskeiðinu er farið yfir 10 hagnýt lykilatriði (þ.á.m. þróun þjónustutilboðs og þjónustumenningar) sem varpa ljósi á kjarna málsins í þjónustustjórnun og þátttakendur geta strax nýtt sér í vinnu sinni og starfsþróun. Fyrir hvert lykilatriði er bent á grundvallarhugtök og verkfæri til hagnýtingar. Einnig verður fjallað um leiðir til að greina gæði þjónustu og forgangsraða úrbótaþáttum.
Að skilja kjarna hugtaka í þjónustustjórnun og tengingu þeirra við starfsemi fyrirtækja/stofnana
Að geta greint og forgangsraðað lykilþáttum í þjónustu sem skipta máli fyrir viðskiptavini
Að kunna að beita hagnýtum aðferðum til að bæta þjónustugæði
Fyrirlestur og umræður. Gagnlegt er að þátttakendur hafi með sér fartölvu en það er ekki skilyrði. Ekki er þörf á aðkeyptu kennsluefni. Þátttakendur gætu haft gagn af því að sækja námskeiðið 2-3 saman frá sama vinnustað og ræða um reynslu sína af þjónustu og þjónustuveitingu í samhengi við námsefnið.
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 12.03.2026 | Þjónustustjórnun - hagnýt lykilatriði | 08:30 | Runólfur Smári Steinþórsson og Þórhallur Örn Guðlaugsson |