Aftur í námskeið

Gervigreind fyrir byrjendur

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Kynning á nokkrum hagnýtum verkfærum

Viltu skilja hvað gervigreind er og hvernig þú getur nýtt hana á einfaldan og hagnýtan hátt? Þá er þetta námskeið fyrir þig.

Á þessu námskeiði færð þú kynningu á fjórum vinsælum gervigreindar (AI) verkfærum: ChatGPT, Perplexity, Gemini og NotebookLM.

Við sýnum þér hvernig þessi tól geta hjálpað þér að leysa hin ýmsu verkefni, spara tíma og öðlast innsýn – hvort sem þú ert að vinna, læra eða bara svala forvitninni um tæknina.
 
Það sem verður kynnt:
hvað gervigreind er og hvernig hún virkar 
hvernig á að nota ChatGPT til að fá svör, skrifa texta og fá hugmyndir 
hvernig Perplexity leitar og skýrir svör með heimildum
hvernig Gemini getur hjálpað þér með Google-verkfæri
hvernig NotebookLM vinnur með þínum eigin gögnum

Efnistök

Grunnhugtök
Hagnýting
Gagnrýni
Geta og takmörk

Hæfniviðmið

Að þekkja til gervigreindar og tengdra hugtaka
Að geta valið og nýtt mismunandi gervigreindartól í lífi og starfi
Að átta sig á mikilvægi þess að viðhalda gagnrýnni hugsun þegar unnið er með gervigreindartól
Að þekkja helstu styrkleika og takmarkanir núverandi gervigreindartækni

Fyrirkomulag

Sýnikennsla og umræður

Umsjón

Hermann Jónsson

Tengiliðir námskeiðs
  • Ingibjörg Hanna Björnsdóttir
Námsform

Streymi

Tími
  • 4. mars 2026 klukkan 09:00-11:00

Lengd

2 klst

Mat

Mæting

Verð

14.000 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur

Öll áhugasöm um gervigreind og almenna notendur sem vilja byrja að nýta gervigreind á einfaldan hátt

Dagskrá

Dagsetning

Dagskrá

Tími

Kennari

04.03.2026

Gervigreind fyrir byrjendur – kynning á nokkrum hagnýtum verkfærum

09:00

Hermann Jónsson